Saturday, April 25, 2009
Friday, April 24, 2009
Sópaborð!
Rope Yoga stöð
Thursday, April 23, 2009
How about some Voodoo?
Lumar þú ennþá á gömlum geisladiskum þrátt fyrir i-pod væðinguna? Þá er þessi Voodoo geisladiskastandur fyrir þig. Hann er bæði í senn mikið húsprýði og stofustáss auk þess sem fjórir ógnvekjandi stríðsmenn vakta diskana þína á meðan þú sefur. Þú getur því hætt að hafa áhyggjur, því þeir Laos, Mignon, Keb og Fuji munu vakta gömlu Now og Reif diskana þína sem sjáaldur augna sinna (Nota Bene, upptalning á stríðsmönnunum er frá fremsta manni - þetta getur því orðið ruglingslegt því standurinn er á snúningsdiski ).
María Mey vs. Bjössi bytta

Þetta haganlega tréverk býðst fyrir rétta verðið. Fallegur antikskápur með margþætt notagildi. Ef þú ert kaþólikki er skápurinn tilvalinn undir Maríu Mey líkneski en ef þú ert týpískur íslendingur má nota þetta til að geyma vínflöskur (sjá auglýsingu). Skápurinn er gæddur þeim kosti að í honum er ljós sem kemur sér eflaust vel og fólk þarf því ekki að örvænta yfir því að finna ekki bokkuna þegar skammdegið skellur á aftur. Ljósið gerir það einnig að verkum að þetta er frábær felustaður fyrir börnin og enginn þarf að vera myrkfælin í skápnum. Allir í feluleik!
Trúgjarnar fitubollur athugið!
Að lifa einungis á töflum í 10 daga er klárlega frábær hugmynd. Það eykur svo sannarlega á trúverðuleika auglýsingarinnar að hægt sé að missa upp undir 1.5 kg af fitu á DAG.
Það er ekki hægt neita því að 19.900 kr. er gjafverð fyrir það að fá ekki að borða neitt í 10 daga. Augljóslega nokkuð sem ekki væri hægt að gera upp á sitt einsdæmi. Ætli maður þurfi að borga aukalega ef maður missir meðvitund af hungri og vannæringu?
Wednesday, April 22, 2009
Orðabók þessi hefur vafalaust fleytt mörgum ættliðum ljósmyndasnillingsins sem átti hana á æðri brautir í lífinu. Í danska háskóla....nú eða bara beint á sósjalinn á Jótlandi. Augljóslega hafði bókin þó þjónað eiganda sínum nógu vel og lengi því hún var boðin upp á Er. Mátti hún þó þola samanburð við aðra ekki ófrægari bók í söluræðunni sem fylgdi. Jú meðmælin voru þau að hún væri þykkari en sjálf Biblían!
Eru þetta vöðlur gjaldþrota bankastjóra? Eru þetta kvart aldar gamlar sviðsbuxur rokkararans Meatloaf? Nei, íslensk seleb eru mætt á markaðssvæði Barnalands til að selja notaðar nærbrækur og leggings af botni fataskápsins. Þú heldur kannski að Ásdís Rán hafi átt þessar? Nei það er Sigríður Klingenberger sem vill selja þér þessa dýrð.
Þessi haganlega útsaumaða mynd af erótískt þenkjandi allsnöktu pari sem baðar sig í notalegri appelsínugulri birtu frá seventies lampa var falboðin á ER fyrir ekki svo löngu. Hvort þarna var hinn útsaumsglaði fyrrum bankastjóri Bjarni Ármannson að reyna að kría upp í skuldir skal ósagt látið. Reyndar hlýtur að teljast ólíklegt að nokkuð af útrásarvíkingunum hefði efni á dýrðinni því tilboði upp á tíu þúsund krónur var hafnað á þeim forsendum að innrömmunin ein kostaði 30 þúsund!
Tuesday, April 21, 2009
Ég er lygin og löt. Gefið mér pening!
Gefið mér pening!
Helgarpabba svefnsófi
Sérdeilis fallegur sófi sem myndi sóma sér vel á biðstofu húð- og kyn eða minimalístískum piparsveinaíbúðum.
Ef viðkomandi fílar ekki hrátt retro áklæðið má jafnvel "hylja" sófann með þessu fallega eggjabakka teppi sem fylgir því miður ekki með.
PS. Sýna þarf fram á 6 mánaða samfellda meðlagsgreiðslu við kaup
Monday, April 20, 2009
Subscribe to:
Posts (Atom)

.jpg)










